Íbúðasala gengur vel
Sala í íbúðum fer ágætlega af stað í Gerplustræti og þökkum við sölumönnum Höfða og Mikluborgar fyrir eljusemina. Frá miðjum júní hafa selst 7 íbúðir í Gerplustræti og 1 raðhús í Rauðumýri, sem eru u.þ.b. íbúð á viku. Góð sala sannar gæði og hagkvæmt verð á íbúðum frá okkur.

Tilbúin sýningaríbúð
Nú er fullbúin sýningaríbúð í Gerplustræti þar sem hægt er að kynna sér stórglæsilegan frágang á fullbúnum íbúðum frá Pálmatré. Hægt er að bóka skoðun alla virka daga með því að hafa samband við sölumenn okkar hjá Höfða eða Mikluborg. Einnig er hægt að hafa samband við Pálmatré í síma 898-9313.

Bygging Gerplustrætis miðar vel
Uppsteypu Gerplustrætis 25-27 lokið og unnið er hörðum höndum að utanhússfrágangi og innréttingu hússins. Fyrstu íbúðirnar verða afhentar í september og október núna í haust en áætlað er að lokafrágangi við húsið ljúki janúar 2009.

Gerplustræti
Nú stendur yfir uppsteypa á 24 íbúða fjölbýli við Gerplustræti í Helgafellslandi. Þetta verður vandað hús með rúmgóðum og vel skipulögðum íbúðum sem eru 3 til 5 herbergja. Öllum íbúðum fylgir svo stæði í bílgeymslu. Verkinu miðar vel og er áætlað að íbúðir verði til afhendingar í haust. Sjá fasteignavef Pálmatrés.

 

 
 

© Pálmatré ehf. 2001 - 2008 - Allur réttur áskilinn
Sími 898-9313 / 553-9313

Vefsíða gerð af Krypton ehf.